spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSpámenn Körfunnar með loftbolta í spá sinni fyrir 1. deild karla -...

Spámenn Körfunnar með loftbolta í spá sinni fyrir 1. deild karla – Sindri stökk upp um fimm sæti

Líkt og síðustu tímabil setti Karfan upp spá fyrir deildarkeppnina í efstu deildum þar sem sérfræðingar og pennar Karfan.is settu sig í spámannssætið og stóðu sig með ágætum.

Spámenn Körfunnar voru svo gott sem sannfærðir um að Hamar myndi standa uppi sem sigurvegari í 1. deild karla á tímabilinu. Svo varð ekki þar sem Breiðablik vann deildina að lokum ansi sannfærandi. Hástökkvarar töflunnar var Sindri sem spáð var 8. sæti deildarinnar en enduðu í þriðja sæti eftir að hafa verið í toppbaráttu meirihluta tímabilsins. Liðið sem féll hvað mest var lið Fjönis sem var spáð 4 sæti en enduðu í því sjöunda.

Spánna og lokastöðuna má finna hér að neðan:

Spáin:

  1. Hamar – 9.39
  2. Breiðablik – 8.17
  3. Álftanes – 7.50
  4. Fjölnir – 6.22
  5. Skallagrímur – 6.00
  6. Vestri – 5.78
  7. Selfoss – 4.06
  8. Sindri – 3.33
  9. Hrunamenn 2.94
  10. Snæfell – 1.61

Lokastaða og sætamunur frá spánni:

  1. Breiðablik (+1)
  2. Hamar (-1)
  3. Sindri (+5)
  4. Vestri (+2)
  5. Álftanes (-2)
  6. Skallagrímur (-1)
  7. Fjölnis (-3)
  8. Selfoss (-1)
  9. Hrunamenn (-)

Fréttir
- Auglýsing -