Kristinn Pálsson og Aris Leeuwarden lögðu Limburg í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu, 62-73.
Sigur kvöldsins sá fimmti í röð hjá Aris, en þeir eru nú í 3. sæti hollenska hluta deildarinnar með níu sigra og þrjú töp það sem af er tímabili.
Á 35 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Kristinn 8 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Aris er þann 13. janúar gegn ZZ Leiden.