Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners lögðu Wurzburg í kvöld í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 66-95. Eftir leikinn eru Skyliners í 13. sæti deildarinnar með 12 sigra og 21 tap það sem af er tímabili.
Á tæpri 21 mínútu spilaðri skilaði Jón Axel 11 stigum, 4 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Næsti leikur Skyliners er lokaleikur deildarkeppninnar gegn Hamburg komandi sunnudag 9. maí.