Martin Hermannsson og Valencia lögðu í kvöld lið Bilbao í ACB deildinni á Spáni, 99-90. Eftir leikinn eru Valencia í 5. sæti deildarinnar með 20 sigra og 11 töp.
Á tæpum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 8 stigum, frákasti og 5 stoðsendingum, en hann var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins í dag. Næsti leikur Valencia í deildinni er þann 30. apríl gegn Murcia.