Skallagrímur lagði KR í dag í 17. umferð Dominos deildar kvenna, 80-88. Eftir leikinn sem áður er Skallagrímur í 5. sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að KR er í 7.-8. sætinu með 4 stig líkt og Snæfell.
Karfan spjallaði við Emblu Kristínardóttur, leikmann Skallagríms, eftir leik í Vesturbænum. Embla átti skínandi dag á vellinum í dag. Skilaði 13 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum á 35 mínútum spiluðum í leiknum.