spot_img
HomeFréttirFyrsti NBA2K landsliðshópur Íslands kynntur

Fyrsti NBA2K landsliðshópur Íslands kynntur

Ísland hefur keppni á NBA2k móti FIBA nú á morgun föstudaginn 23. apríl. Nú í hádeginu var tilkynnt hverjir skipa liðið, en það eru þeir Agnar Daði Jónsson, Alexander Leon Kristjánsson, Björgvin Lúther Sigurðarson, Friðrik Heiðar Vignisson, Lórenz Geir Þórisson og Róbert Ingi Gunnarsson. Liðsstjórar eru Aron Ólafsson, Jóhannes Páll Durr og Kristinn Geir Pálson.

Heimasíða mótsins
Nánari dagskrá og tenglar til að horfa

Tilkynning:

K í samvinnu við Rafíþróttasamtök Íslands mun Ísland taka þátt í FIBA Esport Open III þar sem keppt verður á Playstation í leiknum NBA2K í lok vikunnar. Þetta er í fyrsta sinn sem KKÍ og Ísland tekur þátt í rafíþróttamóti á vegum FIBA.


Keppni hefst föstudaginn 23. apríl og verður Ísland í riðli með þrem öðrum liðum. Fyrsti leikur hefst kl. 17:00 og verður svo leikið aftur kl. 17:40 og 18:20. Alls eru fjórir riðlar með fjórum liðum í Evrópudeildinni. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í 8-liða úrslitin sem leikin verða á laugardeginum 24. apríl og fjögur bestu fara í lokaúrslitin á sunnudeginum. 


Ísland er í riðli með Kýpur, Bosníu og Serbíu og er stefnt að því að hægt verði að fylgjast með keppinni beint á rafíþróttarás Stöðvar 2 Sport sem og á netinu á miðlum FIBA (Youtube, Facebook og Twitch) undir merkinu #FIBAesportsOpen


Sex leikmenn eru skráðir á mótið að þessu sinni og eru fimm sem spila hvern leik. Um tímamót er að ræða í sögu KKÍ þar sem þetta er fyrsta rafíþróttalið KKÍ sem mætir til leiks á vegum sambandsins og við hæfi að það sé að gerast nú á 60 ára afmælisári sambandsins.
Landslið Íslands í NBA2K 2021 skipa eftirtaldir leikmenn:

#24 · Agnar Daði Jónsson · 28 ára · Reykjavík# 9 · Alexander Leon Kristjánsson · 19 ára · Ísafjörður#11 · Björgvin Lúther Sigurðarson · 43 ára ·Reykjavík#12 · Friðrik Heiðar Vignisson (Fyrirliði) · 18 ára · Ísafjörður# 7 · Lórenz Geir Þórisson · 17 ára · Hafnarfjörður#34 · Róbert Ingi Gunnarsson · 18 ára · Hafnarfjörður
Liðsstjórar: Aron Ólafsson og Jóhannes Páll Durr frá RÍSÍ og Kristinn Geir Pálson frá KKÍ. 

Tímasetningar leikja:Föstudagur 23. aprílkl. 17:00 gegn gegn Kýpurkl. 17:40 gegn Bosníukl. 18:20 gegn Serbíu
Laugardagur 24. apríl(Mögulega – 8-liða úrslit fyrir efstu tvö liðin í riðlinum)
Sunnudagur 25. apríl(Mögulega – Undanúrslit og úrslit)

Fréttir
- Auglýsing -