Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza unnu Acunsa GBC nokkuð örugglega í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 99-71. Zaragoza eftir leikinn í 13. sæti deildarinnar með 11 sigra og 19 töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 16 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 13 stigum og 4 fráköstum, en hann tróð boltanum í fimm skipti í leiknum. Næsti leikur Zaragoza er þann 24. apríl gegn Unicaja Malaga.