Lið Martins Hermannssonar, Valencia, hafði betur gegn liði Tryggva Hlinasonar, Casademont Zaragoza, í ACB deildinni á Spáni í gærkvöldi, 76-85.
Á 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 10 stigum, 9 fráköstum og 3 vörðum skotum, þá var hann framlagshæsti leikmaður Zaragoza í leiknum með 18 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Hér fyrir neðan má sjá það helsta frá Tryggva í leiknum: