Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir Gran Canaria í ACB deildinni á Spáni, 84-76. Eftir leikinn eru Zaragoza í 12. sæti deildarinnar með 10 sigra og 17 töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 4 stigum og 2 fráköstum. Næsti leikur Zaragoza í deildinni er gegn Valencia þann 11. apríl.