spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHaukur Helgi og Andorra unnu góðan sigur á Spáni

Haukur Helgi og Andorra unnu góðan sigur á Spáni

Haukur Helgi Pálsson og Morabanc Andorra unnu í kvöld góðan sigur á Urbas Fuenlabrada í ACB deildinni á Spáni, 65-75. Eftir leikinn er Andorra í 10. sæti deildarinnar með 11 sigra og 13 töp það sem af er tímabili.

Á 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Haukur Helgi 3 stigum og 2 fráköstum. Næsti leikur Andorra í deildinni er komandi sunnudag 21. mars gegn Baxi Manresa, en Haukur lék fyrir þá árið 2015.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -