Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir stórliði Barcelona í ACB deildinni á Spáni, 107-88. Eftir leikinn eru Zaragoza í 11. sæti deildarinnar með 10 sigra og 15 töp það sem af er tímabili.
Tryggvi hafði frekar hægt um sig í leiknum. Á rúmum 5 mínútum spiluðum skilaði hann 4 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu. Næsti leikur Zaragoza í ACB deildinni er þann 20. mars gegn liði Estudiantes.