Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners lögðu lið Göttingen í dag í þýsku úrvalsdeildinni, 89-93. Eftir leikinn eru Skyliners í 9. sæti deildarinnar með átta sigra og 13 töp það sem af er tímabili.
Á um 33 mínútum spiluðum í leik dagsins skilaði Jón Axel 15 stigum, 6 fráköstum og 5 stoðsendingum. Næsti leikur Skyliners er þann 13. mars gegn Giessen.