Sigtryggur Arnar Björnsson og Real Canoe máttu þola tap nú um helgina fyrir Coviran Granada í Leb Oro deildinni á Spáni, 77-70. Canoe eru sem áður í 10. sæti B hluta deildarinnar með tvo sigra og fjórtán töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Arnar 12 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum. Næsti leikur Canoe er nú í dag gegn Alicante.