Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners lögðu Rasta Vechta í kvöld í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 84-75. Eftir leikinn eru Skyliners í 9. sæti deildarinnar með 8 sigra og 13 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 17 stigum, 4 fráköstum, 2 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Næsti leikur Skyliners í deildinni er gegn Göttingen komandi sunnudag 7. mars.