spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már stoðsendingahæstur í naumu tapi gegn Lietkabelis

Elvar Már stoðsendingahæstur í naumu tapi gegn Lietkabelis

Elvar Már Friðriksson og Siauliai máttu þola naumt tap í kvöld fyrir sterku liði Lietkabelis í úrvalsdeildinni í Litháen, 84-86. Eftir leikinn er Siauliai í 10. sæti deildarinnar með fimm sigra og sextán töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 6 stigum, frákasti, 7 stoðsendingum og stolnum bolta. Næsti leikur Siauliai er gegn Pieno Zvaigzdes komandi laugardag 6. mars.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -