Haukar lögðu Breiðablik í kvöld í Dominos deild kvenna, 60-70. Leikurinn sá fyrsti sem liðin leika eftir nokkurra vikna landsleikjahlé, en eftir hann eru Haukar í efri hluta deildarinnar með 12 stig á meðan að Breiðablik er öllu neðar með 4 stig.
Karfan spjallaði við Þóru Kristínu Jónsdóttur, leikmann Hauka, eftir leik í Smáranum. Þóra var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins í kvöld, á 27 mínútum spiluðum skilaði hún 17 stigum, 7 fráköstum og 3 stoðsendingum.