spot_img
HomeFréttirBjarni Guðmann atkvæðamikill í spennuleik gegn Rogers State

Bjarni Guðmann atkvæðamikill í spennuleik gegn Rogers State

Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Rogers State í bandaríska háskólaboltanum, 66-69. Tigers það sem af er tímabili unnið átta leiki og tapað níu.

Á 27 mínútum spiluðum skilaði Bjarni Guðmann 14 stigum, 7 fráköstum, stoðsendingu, 2 stolnum boltum og vörðu skoti. Næst leika Tigers gegn Northeastern State komandi sunnudag 13. febrúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -