spot_img
HomeFréttirLætur af störfum sem landsliðsþjálfari

Lætur af störfum sem landsliðsþjálfari

Benedikt Guðmundsson mun ekki halda áfram sem þjálfari landsliðs kvenna hjá Íslandi. Staðfestir KKÍ þetta með fréttatilkynningu fyrr í dag.

Benedikt hefur verið þjálfari Íslands síðan 2019 og á þeim tíma stýrt liðinu í 27 leikjum þar sem 6 þeirra unnust. Samkvæmt tilkynningu sambandsins er leit að nýjum þjálfara þegar hafin, en það mun vera í 11. skipti það sem af er þessari öld sem sambandið ræður nýjan þjálfara.

Tilkynning:

Benedikt Guðmundsson hefur lokið störfum sem aðalþjálfari A landsliðs kvenna. Benedikt tók við landsliðinu í mars 2019, á þessum tíma stýrði hann liðinu í 27 leiki og unnust 6 af þeim.

Liðið fór í gegnum kynslóðaskipti og gerði Benedikt virkilega vel í að setja saman spennandi hóp sem fór vaxandi með hverjum leiknum.

KKÍ er afar þakklátt fyrir gríðarlega gott samstarf við Benedikt og hans aðstoðarmenn. Skilja þeir eftir sig spennandi lið sem á framtíðina fyrir sér.

KKÍ hefur nú þegar hafið leitina að eftir manni hans.

Fréttir
- Auglýsing -