spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Ísland spilar í Póllandi á EuroBasket - Mæta Luka Doncic og Slóveníu...

Ísland spilar í Póllandi á EuroBasket – Mæta Luka Doncic og Slóveníu í Katowice

KKÍ og körfuknattleikssamband Póllands hafa náð samkomulagi um að Ísland spili í Póllandi á EuroBasket í haust og hefur FIBA Europe samþykkt það samkomulag.

Það er því ljóst að Ísland mun mæta heimamönnum í Póllandi og Slóveníu í riðlakeppninni. Póllandi þar sem þeir eru heimaþjóð riðilsins og Slóveníu þar sem þeir eru eina liðið sem ekki er komið í riðil úr styrkleikaflokki 2.

Hérna eru fréttir af EuroBasket

EuroBasket í haust fer fram í fjórum löndum Póllandi, Lettlandi, Finnlandi og Kýpur en löndin eru samtals 24 sem keppa á EuroBasket á fjögurra ára fresti. Þessi lönd gátu svo samið við eina þjóð um að vera með þeim í riðli áður en dregið verður í riðla 27. mars. Finnland samdi við Litháen, Lettland við Eistland og Kýpur við Grikkland.

Leikstaður Íslands á EuroBasket verður í Katowice í Póllandi og mun Ísland spila í Spodek höllinni sem tekur um 9.000 manns í sæti.  Mikill áhugi er nú þegar fyrir leikjum Íslands á EuroBasket og munu frekari upplýsingar um miðasölu á leikina og sölu á pakkaferðum verða birtar á næstu dögum.

Dregið verður í riðla fimmtudaginn 27. mars í Riga í Lettlandi en þar munu úrslit mótsins fara fram að lokinni riðlakeppni.

Fréttir
- Auglýsing -