Í hádeginu í dag mánudag 3. mars verður dregið í undanúrslitum VÍS bikarkeppni karla- og kvenna í höfuðstöðvum VÍS í Ármúla.
Líkt og hefð er fyrir verða á svæðinu fulltrúar liða sem taka þátt í undanúrslitunum og munu viðtöl við einhverja þeirra birtast á Körfunni með deginum.
Bikarvikan er á dagskrá 18. til 23 mars, en þá eru ásamt leikjum meistaraflokka á dagskrá bikarúrslit fjölda yngri flokka.
Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinu streymi hér, en hér fyrir neðan má sjá hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður.
VÍS bikar karla:
Keflavík
KR
Stjarnan
Valur
VÍS bikar kvenna:
Grindavík
Hamar/ Þór
Njarðvík
Þór Ak.