Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals máttu þola tap í kvöld fyrir Akron Zips eftir framlengdan leik í bandaríska háskólaboltanum, 89-84. Cardinals það sem af er tímabili unnið níu leiki og tapað fjórum, en þær sitja í 3.-4. sæti Mac deildarinnar ásamt Buffalo Bulls.
Thelma Dís lék allar 45 mínútur í leik kvöldsins. Á þeim skilaði hún 7 stigum, 6 fráköstum, 3 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Næsti leikur Cardinals er komandi mánudag 8. febrúar gegn Nothern Illinois Huskies.