Steven Verplancken hefur yfirgefið Hauka í Bónus deild karla og gengið til liðs við Oviedo á Spáni.
Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Steven kom til Hauka síðadta haudt og hefur átt marga góða leiki fyrir Hauka, sem þó sitja í neðsta sæti deildarinnar. Samkvæmt félaginu mun hann hafa óskað lausnar sem félagið samþykkti og hefur hann því þegar leikið sinn síðasta leik fyrir þá og verður hann ekki með þeim í kvöld gegn Keflavík.