Fimm leikir fara fram í fyrstu deildum karla og kvenna í kvöld.
Í fyrstu deild karla eru fjórir leikir. Hrunamenn á Fjölni í heimsókn á Flúðir, Breiðablik og Selfoss mætast í Vallaskóla, á Höfn í Hornafirði eigast við heimamenn í Sindra og Álftanes og í Hveragerði tekur Hamar á móti Vestra.
Þá er einn leikur í fyrstu deild kvenna, þar sem að Ármann og Njarðvík eigast við í Kennaraháskólanum.
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla:
Hrunamenn Fjölnir – kl. 19:15 – Í beinni útsendingu Hrunamanna Tv
Selfoss Breiðablik – kl. 19:15 – Í beinni útsendingu Selfoss Tv
Sindri Álftanes – kl. 19:15 – Í beinni útsendingu Sindri Tv
Hamar Vestri – kl. 19:15 – Í beinni útsendingu Hamar FB
Fyrsta deild kvenna:
Ármann Njarðvík – kl. 20:00