spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaBaldur Þór: Kominn tími til að Garðabærinn vakni og átti sig á...

Baldur Þór: Kominn tími til að Garðabærinn vakni og átti sig á því að þeir séu með alvöru körfuboltalið

Stjarnan lagði Grindavík nokkuð örugglega í Smáranum í kvöld í 16. umferð Bónus deildar karla, 87-108.

Eftir leikinn er Stjarnan sem áður í efsta sæti deildarinnar, nú með 26 stig. Grindavík aftur á móti eru í 4. til 5. sætinu með 16 stig líkt og Íslandsmeistarar Vals.

Hérna er meira um leikinn

Baldur Þór þjálfari Stjörnunnar gat ekki annað en verið sáttur við sína menn í kvöld:

Baldur…þetta var kannski svolítið draumaleikurinn fyrir þjálfarann…þó staðan hafi verið 20-20 eftir fyrsta þá gaf það ekki rétta mynd af þessu og þetta var þægilegur sigur má segja?

Já, við spiluðum bara vel á báðum endum vallarins og tókum engar stórar dýfur, héldum takti nánast allan leikinn þannig að ég er bara mjög ánægður með þetta.

Akkúrat. Það er hægt að fara í ýmis atvik en það var áberandi, einkum í öðrum leikhluta, að þegar Grindvíkingar voru að reyna að keyra á körfuna þá mættu bara Jase og Shaq ítrekað og blokkuðu allt sem kom nálægt körfunni…það hefur verið ánægjulegt að sjá þetta og menn voru fókuseraðir?

Já bara mjög fókuseraðir. Jase og Shaq hafa það framyfir marga atvinnumenn sem koma til Íslands að þeir eru frábærir á varnarvelli sem auðvitað er líka mjög mikilvægt í þessum leik. Jase og Shaq gefa ekkert eftir þar og það er frábært við þessa leikmenn.”

…og Jase átti kannski líka einn sinn besta leik sóknarlega í kvöld…?

Hann var bara frábær í kvöld, frábær á báðum endum vallarins.

Þið ákveðið að bæta við manni, Jaka, ekki Brodnik, en snarörvhentur samt sem áður! Það er svona til að dýpka hópinn enn meira fyrir átökin framundan, farið að styttast í úrslitakeppnina og svona…?

Það er náttúrulega bara þannig að Ægir er kannski eini leikstjórnandinn í liðinu og eftir það erum við meira með vængspilara eða þrista, fjarka og fimmur. Þar af leiðandi fannst mér að við þyrftum að vera með mann sem gæti stjórnað leiknum á meðan Ægir sæti á bekknum svo allir geti bara spilað sínar stöður. Jaka er með reynslu og hefur spilað á háu leveli, hann er ekkert að koma hingað til að skora 300 stig sko! Hann er bara að fylla í hlutverk og verður vel hæfur til að gera það. Hann er bara búinn með 2 æfingar og er að finna rytmann og allt það, en þetta er svona pælingin. Hann er góður í mörgum hlutum og góður varnarlega líka svo ég tel að hann fitti bara vel inn í þetta hjá okkur.” 

Já, akkúrat. Það verður sennilega önnur stemmning í næsta leik hjá ykkur, Stólarnir næsti andstæðingur ekki satt?

Jú, Stólarnir heima á sunnudaginn ef veður leyfir!

Já við skulum vona það! En það verður sennilega svolítið öðruvísi leikur en hérna í kvöld, eigum við að segja að þetta verði mögulega úrslitaleikurinn um deildarmeistaratitilinn?

Það er kannski of snemmt að segja það en þetta er alveg stór leikur og bæði lið vilja pottþétt vinna rosa mikið! Við spiluðum hörku leik við þá á Króknum fyrir áramót og töpuðum, þeir voru ekki einu sinni fullmannaðir þar sem það vantaði Sadio í þeim leik. Það er bara hörkulið og mikið challenge að díla við það. Það er kominn tími til að Garðabærinn vakni og átti sig á því að þeir séu með alvöru körfuboltalið og það þurfi að mæta á völlinn og styðja það! Ef þú gerir það ekki þá mun Skagafjörðurinn rúlla þér upp í stúkunni.

Einhvern tímann var eitthvað sem hét Silfurskeiðin…veit ekki hvort hún er á bólakafi einhvers staðar…?

Nei…! Ég vona að einhver útgáfa af þeim vakni til lífsins, það er ákall eftir sjötta manninum í Garðabænum, vonandi eru einhverjir tilbúnir að taka þessu ákalli og stíga upp í þeim efnum!

Sagði Baldur og undirritaður tekur heils hugar undir. Garðbæingar – dragið fram sparistellið og skapið alvöru stemmingu gegn Stólum í næsta leik!

Fréttir
- Auglýsing -