Martin Hermannsson og Alba Berlin lögðu Maccabi Tel Aviv í Ísrael í EuroLeague í kvöld, 87-93.
Martin átti frábært kvöld fyrir sína menn, skilaði 11 stigum, 2 fráköstum, 11 stoðsendingum og 2 stolnum boltum á rúmum 20 mínútum spiluðum, en hann var framlagshæsti leikmaður vallarins með 25 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Þrátt fyrir glæstan sigur í kvöld er staða Alba Berlin nokkuð erfið í deildinni, eru eftir leik kvöldsins í 18. sætinu með fjóra sigra og tuttugu töp.