Álftnesingar lögðu ÍR í Skógarseli í kvöld í 16. umferð Bónus deildar karla, 75-94.
Eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í 6. til 10. sæti deildarinnar með 14 stig.
Gestirnir frá Álftanesi voru með tögl og haldir í leiknum frá fyrstu mínútum. Leiddu með 9 stigum eftir fyrsta leikhluta og 16 stigum þegar í hálfleik var komið. Heimamenn í ÍR náðu aðeins að koma til baka með sterku áhlaupi undir lok þriðja leikhlutans, en fyrir lokafjórðunginn munaði aðeins 8 stigum á liðunum. Álftanes náði þá aftur góðum tökum á leiknum í þeim fjórða og sigla þeir að lokum gífurlega öruggum 19 stiga sigur í höfn, 75-94.
Fyrir ÍR var Oscar Jorgensen atkvæðamestur með 23 stig og Jakob Falko bætti við 16 stigum, 6 fráköstum og 7 stoðsendingum.
Fyrir gestina var Justin James atkvæðamestur með 34 stig, 5 fráköst og 9 stoðsendingar. Honum næstur var David Okeke með 27 stig og 13 fráköst.
Myndasafn (væntanlegt)