spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaÚr Grafarvoginum í Ólafssal

Úr Grafarvoginum í Ólafssal

Landsliðskonan Sigrún Björg Ólafsdóttir hefur fengið félagaskipti frá Fjölni yfir í Hauka í Bónus deild kvenna.

Sigrún Björg er 23 ára bakvörður sem er að upplagi úr Haukum, en síðustu ár hefur hún verið með Chattanooga Mocs í bandaríska háskólaboltanum. Þrátt fyrir að vera í háskólaboltanum lék Sigrún nokkra leiki fyrir Fjölni tímabilið 2020-21, en síðan þá hefur hún ekki leikið á Íslandi.

Þrátt fyrir ungan aldur var Sigrún mikilvægur leikmaður í meistaraliði Hauka árið 2016, þar sem hún skoraði 11 stig í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Þá hefur hún leikið sjö leiki fyrir íslenska landsliðið frá árinu 2019.

Fréttir
- Auglýsing -