spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaYfirgefur Grindavík fyrir toppliðið

Yfirgefur Grindavík fyrir toppliðið

Ragnheiður Björk Einarsdóttir er samkvæmt félagaskiptasíðu KKÍ komin með félagaskipti frá Grindavík í Bónus deildinni til Ármanns í fyrstu deildinni.

Ragnheiður Björk er 25 ára gamall framherji sem að upplagi er úr Hrunamönnum, en í efstu deild hefur hún leikið með Haukum, Breiðablik og Grindavík. Þá var hún á sínum tíma hluti af öllum yngri landsliðum Íslands.

Ragnheiður hefur þegar hafið leik með Ármanni, en fyrsti leikur hennar var gegn ungmennaliði Stjörnunnar á dögunum þar sem hún skilaði 8 stigum og 6 fráköstum. Ármann er sem stendur í efsta sæti fyrstu deildarinnar með 10 sigra í jafn mörgum leikjum.

Fréttir
- Auglýsing -