Þetta var þriðji sigur Keflavíkur í röð og liðið er nú tveimur stigum á eftir toppliði Hauka sem á hins vegar leik til góða við Grindavík á morgun. í þessari þriðju síðustu umferð deildarinnar. Keflavík og Haukar mætast svo í næstu umferð.
Leikurinn byrjaði jafn og spennandi, stólastúlkur gerðu fyrstu 4 stig leiksins með körfum frá Edytu og Oumoul Khairy. Heimaliðið leiddi nánast allan fyrsta leikhluta. En Jasmine hélt Keflavík inní leiknum. Staðan eftir fyrsta leikhluta 22-19
Tölfræði leiksins
Staðan var svo 43-40 fyrir Keflavík í hálfleik í kvöld en liðið vann þriðja leikhluta með miklum mun, 29-15, og hélt svo áfram að bæta við forskotið í síðasta leikhlutanum.
Tindastóls liðið sá aldrei til sólar í seinni hálfleiknum og lokatölur 69-97 fyrir Keflavík sem voru einfaldlega aðeins of stórar fyrir nýliðana hérna í dag.
Myndasafn ( Væntanlegt )
Jasmine Dickey var stigahæst hjá Keflavík með 25 stig og 17 fráköst. Alls voru sex leikmenn liðsins með tíu stig eða meira en Thelma Dís Ágústsdóttir var næststigahæst með 13 stig og 8 stoðsendingar.
Hjá Tindastóli var Oumoul Khairy stigahæst með 20 stig og Edyta Falenzcyk skoraði 13, en Brynja Líf Júlíusdóttir skoraði tvö stig og tók tíu fráköst.
Tindastóll er áfram með 16 stig í 5. sæti deildarinnar og kemur líkalega til með að hefja úrslitakeppnina á útivelli.