spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaReynslumikill fyrrum landsliðsmaður til Stjörnunnar

Reynslumikill fyrrum landsliðsmaður til Stjörnunnar

Stjarnan hefur samið við Jaka Klobucar um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Bónus deild karla.

Jaka er 198 cm slóvenskur bakvörður/framherji sem kemur til Stjörnunnar frá Olimpija í heimalandinu. Líkt og aldurinn gefur til kynna er Jaka nokkuð reynslumikill atvinnumaður, en hann hefur meðal annars leikið fyrir lið í efstu deildum í Grikklandi, Þýskalandi, Frakklandi og Tyrklandi. Þá var hann um árabil hluti af sterku landsliði Slóveníu.

Tilkynning:

Jaka Klobučar er reynslumikill körfuboltamaður frá Slóveníu. Hann á að baki langan og farsælan feril og hefur leikið með stórliðum í Evrópu. Einnig var hann hluti af A-landsliði Slóveníu á árunum 2007 til 2017.

Jaka er fjölhæfur bakvörður sem getur spilað margar stöður á vellinum. Hann er einnig þekktur fyrir sterkan varnarleik og ætti því að passa vel inn í hópinn hjá Stjörnumönnum.

Við að sjálfsögðu tökum vel á móti honum, en næsti leikur er útileikur gegn Grindavík á fimmtudaginn!

Fréttir
- Auglýsing -