spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaNBA leikmenn á Íslandi

NBA leikmenn á Íslandi

Frá upphafi Íslandsmótsins og fram að vorinu 2024 höfðu tveir leikmenn leikið hér á landi eftir að hafa leikið í NBA. Á þessu tímabili sem er í gangi hafa tveir bæst við í hópinn og tveir aðrir væntanlegir.

Pétur Guðmundsson lék 150 deildarleiki á fimm tímabilum á árunum 1981 til 1989 með Portland Trailblazers, Los Angels Lakers og San Antonio Spurs. Hann lék einnig 14 leiki í úrslitakeppninni með Lakers og Spurs.
Deildarkeppni: 150 leikir (4,6 stig, 3,8 fráköst, 1,0 stoðsendingar)
Úrslitakeppni: 14 leikir (3,0 stig, 1,9 fráköst, 0,3 stoðsendingar)

Marvin Kurk Lee gekk til liðs við ÍA í janúar 1999 og lék 8 leiki með liðinu þar sem hann var með 32,4 stig, 12,1 frákast og 5,8 stoðsendingar að meðaltali. Hann hóf atvinnumannaferil sinn í NBA deildinni tímabilið 1990–1991 þar sem hann lék 48 leiki með New Jersey Nets.
Deildarkeppni: 48 leikir (1,6 stig, 0,6 fráköst, 0,7 stoðsendingar)

Ty-Shon Alexander hóf sinn atvinnumannaferil með Phoenix Suns tímablið 2020–2021. Hann kom við sögu í 15 deildarleikjum og 1 leik í úrslitum NBA deildarinnar það árið. Hann gekk til liðs við Keflavík í nóvember og er með 22,4 stig, 4,4 fráköst og 4,5 stoðsendingar að meðaltali í 8 leikjum.
Deildarkeppni: 15 leikir (0,6 stig, 0,7 fráköst, 0,4 stoðsendingar)
Úrslitakeppni: 1 leikir (2,0 stig, 0,0 fráköst, 0,0 stoðsendingar)

Justin Taylor James lék tvö tímabil með Sacramento Kings frá 2019–2021 þar sem hann komið við sögu í 72 deildarleikjum. Hann gekk til liðs við Álftanes í desember og er með 21,8 stig, 6,6 fráköst og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í 5 leikjum.
Deildarkeppni: 72 leikir (3,2 stig, 0,9 fráköst, 0,6 stoðsendingar)

Jeremy Pargo lék með fjórum liðum á þremur tímabilum sínum í NBA. Hann hóf ferilinn með Memphis Grizzlies tímabilið 2011–2012 og skipti næsta tímabili með Cleveland Cavaliers og Philadelphia 76ers. Hann lék síðast í deildinni í febrúar 2020 er hann kom við sögu í þremur leikjum með Golden State Warriors.
Deildarkeppni: 86 leikir (4,8 stig, 1,0 fráköst, 1,8 stoðsendingar)

Tony Wroten á líklegast bestu tölurnar af öllum þeim NBA leikmönnum sem hafa ratað til Íslands en hann lék 145 leiki í NBA á árunum 2012 til 2015 og var mest með 16,9 stig að meðaltali í leik. Hann samdi við Selfoss í næst efstu deild í desember en bíður enn eftir að fá leikheimild með liðinu.
Deildarkeppni: 145 leikir (11,1 stig, 2,5 fráköst, 3,0 stoðsendingar)
Úrslitakeppni: 6 leikir (1,3 stig, 0,7 fráköst, 0,3 stoðsendingar)

Fréttir
- Auglýsing -