Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons lögðu Spirou í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu í kvöld, 88-76.
Á tæpum 16 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær 11 stigum og 3 fráköstum.
Eftir leikinn er Mons í 11. sæti deildarinnar með níu sigra og níu töp það sem af er tímabili.