spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaJón Axel og Skyliners lágu fyrir Ulm í spennuleik

Jón Axel og Skyliners lágu fyrir Ulm í spennuleik

Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola tap í kvöld fyrir liði Ulm í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 80-76. Eftir leikinn eru Skyliners í 8. sæti deildarinnar, með sex sigra og níu töp það sem af er tímabili.

Á um 29 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 14 stigum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta. Næsti leikur Skyliners í deildinni er komandi laugardag 6. febrúar gegn Rasta Vechta.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -