Aukasendingin kom saman með góðkunningjum þáttarins þeim Sigurði Orra “Véfrétt” Kristjánssyni og Guðmundi Inga Skúlasyni.
Farið var yfir allar viðureignir síðustu umferðar Bónus deildar karla, spáð í lagskiptingu deildarinnar og þá eru einnig ræddar Bónus deild kvenna og fyrstu deildir karla og kvenna.
Þá er einnig farið yfir hvaða fimm þjálfarar sem ekki eru í Bónus deild karla ættu að fá lið á næstunni og hvaða leikmenn hafa mögulega lækkað í verði á tímabilinu.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.