spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaLutu í lægra haldi í Tyrklandi

Lutu í lægra haldi í Tyrklandi

Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap gegn Fenerbahce í EuroLeague í kvöld, 90-73.

Eftir að hafa verið frá í síðustu leikjum Berlínarliðsins var fyrirliðinn Martin aftur mættur á parketið í kvöld, en á tæpum 13 mínútum spiluðum skilaði hann sex stigum, þremur stoðsendingum og stolnum bolta.

Alba Berlin er eftir leikinn í 18. sæti deildarinnar með þrjá sigra og sautján töp það sem af er keppni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -