Martin Hermannsson og Valencia lögðu í kvöld lið Unicaja Malaga í ACB deildinni á Spáni, 85-89. Eftir leikinn er Valencia í 5.-6. sæti deildarinnar með 15 sigra og 6 töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 17 mínútum spiluðum í leik kvöldsins skilaði Martin 6 stigum, 2 stoðsendingum, frákasti og stolnum bolta. Næsti leikur Valencia í deildinni er 6. febrúar gegn Real Betis.