Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers unnu í kvöld lið Nebraska Kearney í bandaríska háskólaboltanum, 68-79. Fort Hays það sem af er tímabili unnið fimm leiki en tapað átta.
Á 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Bjarni Guðmann 7 stigum, 2 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Næsti leikur Fort Hays er þann 4. febrúar gegn Newman.