Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap í EuroLeague í kvöld gegn Zalgiris Kaunas, 66-86.
Á tæpum 17 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin þremur stigum, tveimur fráköstum og þremur stoðsendingum.
Alba Berlin eru eftir leikinn í 18. sæti deildarinnar með þrjá sigra og þrettán töp það sem af er tímabili.