Eftir svekkjandi tap fyrir vestan seinustu helgi voru Fylkismenn staðráðnir í að komast aftur á sigurbrautina er þeir mættu Uppsveitum í Fylkishöllinni.
Uppsveitir mættu í heimsókn á fallegu föstudagskvöldi í Árbænum. Það var búið að raða því þannig upp að 9. Flokkur spilaði á undan meistaraflokknum og það var góð mæting á leikinn.
Fylkismenn voru fljótir af stað og unnu fyrsta leikhluta með 13 stigum. Þeir pressuðu allan völlinn leikinn og náðu í kjölfarið 16 stolnum boltum. Uppsveitamenn héldu þessu jöfnu í fyrri hálfleik en Fylkismenn stungu þá af í seinni hálfleik. Fylkismenn sigldu síðan sigrinum heim í seinni hálfleik og lokatölur voru 127-58 fyrir Fylki.