Verður Keflavík Íslandsmeistari? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 5 lið af 9 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar síðustu ár hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða um 55.5%.
Það er því spurning hvort að lið Keflavíkur fylgji þeirri hefð þetta árið, eða ekki? En liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 13 umferðir með 10 sigurleiki og 3 töp, líkt og Snæfell og KR, sem þær hafa innbyrðissigur á.
2009-2010
Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2010-2011
Efsta lið deildar um jól Hamar
Íslandsmeistarar Keflavík
2011-2012
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Njarðvík
2012-2013
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2013-2014
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2014-2015
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2015-2016
Efsta lið deildar um jól Haukar
Íslandsmeistarar Snæfell
2016-2017
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2017-2018
Efsta lið deildar um jól Valur
Íslandsmeistarar Haukar
2018-2019
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar ???