spot_img
HomeFréttir50% líkur að Keflavík verði Íslandsmeistarar

50% líkur að Keflavík verði Íslandsmeistarar

 

Verða Keflavík Íslandsmeistarar? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er þó mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 3 lið af 6 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 50%. Það er því algjörlega uppi í loftinu hvort að lið Keflavíkur nái að tryggja sér þann stóra, eða ekki? En liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 9 sigurleiki og 2 töp, í öðru sæti er KR (jafnt að stigum) en þeir eru ríkjandi deildar og íslandsmeistarar síðustu tveggja ára.

 

 

2009-2010

Efsta lið deildar um jól Stjarnan

Íslandsmeistarar Snæfell

 

2010-2011

Efsta lið deildar um jól Snæfell 

Íslandsmeistarar KR

 

2011-2012

Efsta lið deildar um jól Grindavík 

Íslandsmeistarar Grindavík

 

2012-2013

Efsta lið deildar um jól Þór Þorlákshöfn

Íslandsmeistarar Grindavík

 

2013-2014

Efsta lið deildar um jól KR

Íslandsmeistarar KR

 

2014-2015

Efsta lið deildar um jól KR 

Íslandsmeistarar KR

 

2015-2016

Efsta lið deildar um jól Keflavík

Íslandsmeistarar ?

Fréttir
- Auglýsing -