Verður Njarðvík Íslandsmeistari? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja vísbendingu er þó mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. Síðustu tvö tímabil eru ekki samanburðarhæf vegna þess að ekkert lið varð Íslandsmeistari tímabilið 2019-20 og 2020-21 voru aðeins leiknir tveir leikir fyrir áramót. Þar á undan, 5 lið af 10 sem höfðu verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar síðustu 10 ár klárað tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 50%.
Það er því spurning hvort að lið Njarðvíkur fylgji þeirri hefð þetta árið, eða ekki? En liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 9 sigurleiki og 2 töp, tveimur stigum á undan Fjölni sem er í öðru sætinu.
2009-2010
Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2010-2011
Efsta lið deildar um jól Hamar
Íslandsmeistarar Keflavík
2011-2012
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Njarðvík
2012-2013
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2013-2014
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2014-2015
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2015-2016
Efsta lið deildar um jól Haukar
Íslandsmeistarar Snæfell
2016-2017
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2017-2018
Efsta lið deildar um jól Valur
Íslandsmeistarar Haukar
2018-2019
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Valur
2019-2020
Efsta lið deildar um jól Valur
Íslandsmeistarar Enginn
2020-2021
Efsta lið deildar um jól Aðeins 2 leikir fyrir jól
Íslandsmeistarar Valur
2021-2022
Efsta lið deildar um jól Njarðvík
Íslandsmeistarar ???