3×3 Íslandsmót á Selfossi 21.-22. október – Skráning í fullum gangi

Helgina 21.-22. október nk. verður haldið Íslandsmót í 3×3 körfubolta fyrir 2008-2010 árganga í Vallaskóla á Selfossi. Mótið er opið öllum áhugasömum ungmennum fæddum 2008 til 2010. Í hverju liði geta minnst verið þrír (3) og mest verið fjórir (4) leikmenn. Leikreglur og frekari upplýsingar má sjá hér fyrir neðan. Við biðjum ykkur að kynna þetta vel fyrir ykkar iðkendum. Þátttökugjald er kr. 6.000 pr. lið.

 SKRÁNING FER FRAM HÉR 

Skráningu lýkur mánudaginn 16. október.

Nokkur atriði varðandi mótið:

  • Það verður einn dómari á hverjum velli.
  • Fyrir leik hita bæði liðin saman upp með einum bolta.
  • Allir leikir byrja á sama tíma og tíminn gengur allan tímann.
  • Það verður tónlist í gangi á meðan mótið stendur yfir og kynnir sem stýrir dagskrá.
  • Að þessu sinni verður leikið án skotklukku. Það verður á ábyrgð dómara að gæta þess að ekki sé verið að tefja leikina. Dómari telur niður frá fjórum (4) ef hann telur að verið sé að tefja eða sókn er orðin of löng.
  • Ef það er jafnt eftir venjulegan leiktíma er spilað áfram þar til annað liðið skorar.
  • Körfur fyrir utan þriggja stiga línuna gilda 2 stig. Körfur fyrir innan þriggja stiga línuna gilda 1 stig.
  • Við skotvillu er tekið eitt (1) vítaskot sem gildir 1 eða 2 stig eftir atvikum.
  • Leikir eru upp í 11 stig eða 10 mín, hvort sem kemur á undan. Ef það er jafnt eftir 10 mín er framlengt og spilað þar til annað liðið skorar.
  • Það er kastað upp á hvort liðið byrjar (eða skæri, blað, steinn) – dómari stýrir því.
  • Leikur byrjar á tékki uppi á topp. Sömuleiðis er byrjað á tékki uppi á topp eftir villur eða leikbrot.
  • Eftir skoraða körfu er það liðið sem fékk á sig körfu sem á boltann og þarf að koma honum með löglegum hætti út fyrir þriggja stiga línuna áður en reynt er að skora.
  • Eftir skoraða körfu má liðið sem skoraði ekki byrja að spila vörn inni í ruðningsfría hálfhringnum, þar til sóknin er búin að hreinsa boltann út fyrir ruðningsfría hálfhringinn.
  • Eftir varnarfrákast eða stolin bolta verður liðið að hreinsa bolta áður en reynt er að skora með því að koma boltanum út fyrir þriggja stiga línuna.
  • Ef það er uppkast fær varnarliðið boltann. Bolti er þá tékkaður uppi á topp.
  • Bónus (dómari skráir hjá sér villur):
  • liðsvillur 1-6 > tékk uppi á topp,
  • liðsvillur 7+ > 1 vítaskot sem gildir 2 stig,
  • liðsvillur 10+ > 1 vítaskot sem gildir 2 stig + bolti.
  • Skiptingar eru heimilar þegar bolti er dauður, áður en hann er tékkaður inn aftur. Skiptingar geta bara farið fram við miðlínu (eða við hliðarlínu næst miðlínu).

Skýringar á leikreglum

Athuga skal þó að gerðar verða smávægilegar breytingar á reglunum svo að leikurinn gangi eilítið hraðar, s.s. 1 vítaskot, engin leikhlé o.s.frv.

3×3 leikreglurnar er hægt að lesa hérna