12:01
{mosimage}
Ákveðið hefur verið að fresta 305 götuboltamótinu til 9. september vegna veðurs.
Ívar Sverrisson skipuleggjandi mótsins sagði í samtali við Körfuna að hann hefði viljað hafa þetta fyrr í sumar en ákveðið að hafa þetta eins konar haustmót. „Að sjálfsögðu er erfiðara að treysta á veðurguðina en vonandi verður hann okkur hliðhollur næstu helgi.”
Skráning í mótið er á [email protected] og er þáttökugjaldið 2000 krónur á lið. Taka skal fram nöfn og kennitölu keppenda ásamt nafn liðs. Greiða á við mætingu en vegleg verðlaun frá AND1 eru í boði.
305 körfuboltamót á Miklatúni 1. september