spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karla26 stiga sigur í Síkinu

26 stiga sigur í Síkinu

Tindastóll lagði Hött með 26 stigum í æfingaleik í Síkinu í gærkvöldi, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf Bónus deildar karla sem hefst næstu mánaðarmót.

Nokkuð jafnræði var á með liðunum í fyrsta fjórðung, en segja má að heimamenn hafi tekið völdin undir lok fyrri hálfleiks og verið með þau til enda leiksins.

Stigahæstir fyrir Tindastól í leiknum voru Dedrick Basile og Ioannis Agravanis með 16 stig hvor. Þá skilaði Davis Geks 14 stigum. Fyrir Hött var Nemanja Knezevic stigahæstur með 15 stig og honum næstir voru Adam Eiður Ásgeirsson og Courvosier Mccauley með 11 stig hvor.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Mynd / Tindastóll FB – Davidmar.net

Fréttir
- Auglýsing -