Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons lögðu Leeuwarden nokkuð örugglega í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu í kvöld, 101-72.
Á 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær 20 stigum (8 af 11 skotnýting), 6 fráköstum, stoðsendingu og vörðu skoti.
Eftir leikinn er Mons í 8. sæti deildarinnar með átta sigra og sjö töp það sem af er tímabili.