spot_img
HomeFréttir16 manna hópur landsliðsins fyrir Smáþjóðaleikana

16 manna hópur landsliðsins fyrir Smáþjóðaleikana

Craig Pedersen, Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson, þjálfarar landsliðs karla, hafa kallað saman 16 leikmenn til æfinga fyrir Smáþjóðaleika 2019 en þeir fara að þessu sinni fram í Svartfjallalandi dagana 27. maí – 1. júní.

Liðið hóf æfingar á mánudaginn í Ásgarði í Garðabæ og æfir næstu tvær vikurnar. Eftir næstu helgi verður svo hópurinn minnkaður niður í endanlegt 12 manna lið.

Nokkrir leikmenn eru frá vegna meiðsla eða af öðrum ástæðum og þar á meðal eru nokkrir sem ennþá eru að spila eða í verkefnum með sínum liðum.

Smáþjóðaleikarnir eru ekki innan keppnisdagatals FIBA sem orsakar skörun við félagslið í dagatali hjá þeim sem leika sem erlendis.

Æfingahópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Björgvin Hafþór Ríkharðsson · Skallagrímur
Breki Gylfason · Appalachian State, USA
Dagur Kár Jónsson · Raiffeisen Flyers Wels, Austurríki
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík
Gunnar Ólafsson · Keflavík
Halldór Garðar Hermannsson · Þór Þorlákshöfn
Haukur Óskarsson · Haukar
Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Hjálmar Stefánsson · Haukar
Ingvi Þór Guðmundsson · Grindavík
Kristinn Pálsson · Njarðvík
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Valur
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · ÍR
Sigvaldi Eggertsson · Monbus Obradorio
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · Nebraska, USA

Leikmenn sem voru valdir en eru ennþá í verkefnum með sínum liðum og því uppteknir:
Frank Booker Jr. · ALM Évreux, Frakkland
Haukur Helgi Pálsson · Nanterre 92, Frakkland
Jón Axel Guðmundsson · NBA-liða æfingar, USA
Martin Hermannsson · Alba Berlin, Þýskaland
Tryggvi Snær Hlinason · Obradorio, Spánn
Ægir Þór Steinarsson · Regatta Corrientes, Argentína

Leikmenn sem voru valdir en eru meiddir/gefa ekki kost á sér:
Collin Pryor · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Kári Jónsson · Barcelona
Kristófer Acox · KR
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Sigtryggur Arnar Björnsson · Grindavík
Sveinbjörn Jóhannesson · Breiðablik

Fréttir
- Auglýsing -