Elvar Már Friðriksson og Maroussi lögðu Norrkoping Dolphins í kvöld í fyrsta leik riðlakeppni FIBA Europe Cup, 99-80.
Á tæpum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 13 stigum, 3 fráköstum, 13 stoðsendingum og 4 stolnum boltum.
Maroussi eru í fjögurra liða riðil í keppninni ásamt Spirou frá Belgíu, Norrkoping frá Svíþjóð og Sabah frá Aserbaísjan, en ásamt þeim unnu Spirou einnig sinn fyrsta leik í keppninni.