Fullt nafn: Bergdís Ragnarsdóttir

 

Aldur: 19 ára

 

Félag: Fjölnir

 

Hjúskaparstaða: Einhleyp

Nám/Atvinna: Stunda nám við Verslunarskóla Íslands

 

Happatala: 7

 

Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? 6 ára gömul í Fjölni

 

Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Bræður mínir

 

Með hvaða félögum hefur þú leikið? Fjölni og KR

 

Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna? Ægir Þór Steinarsson hjá Fjölni og Margrét Kara í KR

 

Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna? Í fyrra fannst mér Natasha Harris hjá Fjölni og Marcus Walker hjá KR vera best

 

Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Bergþóra Holton

 

Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Ragnar Torfason, pabbi minn

 

Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Að sjálfsögðu Bragi Magnússon

 

Uppáhalds NBA leikmaðurinn þinn? Derrick Rose

 

Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? Derrick Rose og Dirk Nowitzki

 

Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei því miður en það er klárlega á dagskránni

Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? Viðurkenni að ég fylgist ekki mikið með honum en verður það ekki núna að vera Manresa á Spáni

 

Sætasti sigurinn á ferlinum? Þegar við urðum Evrópumeistarar í c-riðli í Mónakó með u-16, það var mjög gaman.

 

Sárasti ósigurinn? Man ekki eftir neinum í augnablikinu

 

Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Frjálsar íþróttir

 

Uppáhalds:

kvikmynd: Titanic

leikari: Will Smith

leikkona: Jennifer Aniston

bók: Hef ekki haft mikinn tíma til að lesa bækur fyrir utan námsbækurnar en ég las New Earth í sumar, mjög góð bók.

frasi: “Snilld” …sem er kannski meira orð en frasi samt
matur: Jólamaturinn, hamborgarahryggur

matsölustaður: Nings og Saffran

lag: ekkert sérstakt

hljómsveit: Hljómsveit sem myndi samanstanda af Beyoncé og Rihönnu

staður á Íslandi: Hólmavík

staður erlendis: Mónakó

lið í NBA: Chicago Bulls

lið í enska boltanum: Liverpool

hátíðardagur: Jólin

alþingismaður: Furðulegt en satt þá á ég engan uppáhalds alþingismann

alþingiskona: …né alþingiskonu

heimasíður: karfan.is og facebook

 

Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Ég sef vel nóttina áður, borða vel yfir daginn og fer yfir hlutverk mitt í leiknum í huganum.

Hvernig er síðasta máltíðin fyrir leik? Misjafnt en oftast fæ ég mér hafragraut og ávexti um það bil 2 tímum fyrir leik

 

Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Tapleikjum

 

Furðulegasti liðsfélaginn? Systurnar Erla og Erna, saman eru þær mjög furðulegar

 

Besti dómarinn í IE-deildinni? Sigmundur Már Herbertsson

 

Erfiðasti andstæðingurinn? Signý Hermannsdóttir

 

Þín ráð til ungra leikmanna? Setja sér markmið, æfa aukalega, nýta sumrin vel og muna að hafa gaman af körfuboltanum.

 

Spurning frá Írisi Ásgeirsdóttur sem var síðast í 1 á 1:
Hvað finnst þér um að það eigi að færa þriggja stiga línuna fjær körfunni? Mun það hafa einhver áhrif?

Ég held að það muni hafa töluverð áhrif og hlutfall stiga innan þriggja stiga línunnar mun örugglega aukast.

 

Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1?

Þoriru í einn á einn?

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia