spot_img
HomeFréttirLykilmenn framlengja hjá Þór Þorláks.

Lykilmenn framlengja hjá Þór Þorláks.

Þórsarar úr Þorlákshöfn hafa bundið niður þrjá af lykilmönnum sínum fyrir komandi tíma en þeir Emil Karle, Þorsteinn Már og Ragnar Bragason skrifuðu undir framlengingu á samningi sínum við félagið nú í dag.  Emil og Þorsteinn framlengdu til tveggja ára  og Ragnar um eitt ár til viðbótar í Þorlákshöfninni.  Ljóst að Þórsarar ætla að byggja á fínum árangri félagsins í vetur og toppa það á næsta ári því í vikunni bættu þeir við sig Maceij Baginski. 

Fréttir
- Auglýsing -